Lindarbrún er heilsusamfélag í 84 sjálfbærnivottuðum íbúðum í nálægð við Heilsustofnun í Hveragerði.
Náttúrulækningafélag Íslands hefur um árabil leitað leiða til að bæta húsakost Heilsustofnunar og skjóta styrkari stoðum undir rekstur hennar. Bygging íbúða á landi Heilsustofnunar fyrir einstaklinga sem vilja njóta öryggis og þjónustu Heilsustofnunar er einstakt tækifæri fyrir þá sem setja góða heilsu og vellíðan í öndvegi og mun um leið efla starfsemi Heilsustofnunar.
Allur afrakstur af byggingu og sölu á íbúðum við Lindarbrún mun renna til að endurnýja meðferðaraðstöðu og bæta aðra aðstöðu Heilsustofnunar og hið sama á við um aðra uppbyggingu á lóðinni í framtíðinni, svo sem bygging fleiri íbúða, fjölgun gistirýma á Heilsustofnun og möguleg uppbygging á heilsudvalarstað.
Sjálfbærnivottaðar íbúðir
Glæsilegar íbúðir í nágrenni við helstu útivistarsvæði Hveragerðis með einstakan þjónustusamning við Heilsustofnun.
18 íbúðir eru í fyrsta áfanga, frá 80-176 fermetrar með geymslu.
Stæði í bílakjallara og aðgengi að lyftum í öllum íbúðum.
Íbúar Lindarbrúnar verða með þjónustusamning við Heilsustofnun sem mun styðja íbúa í að bera ábyrgð á eigin heilsu. En allt frá upphafi hefur Heilsustofnun verið í fararbroddi á Íslandi í fyrirbyggjandi aðferðum til betri heilsu og meðvitundar um hollan lífstíl.
Hveragerði hefur mikla sérstöðu þegar kemur að friðsæld og nátturulegu umhverfi. Hverasvæðið er einstakt og nærveran við Varmá, sem liðast í gegnum bæinn og bakgarð Lindarbrúnar, tengir nátturuna saman við heilsueflandi umhverfi.
Hér gefur að líta þá framtíðarsýn sem Lindarbrún er ætluð.
Byggt verður nýtt meðferðahús og húsnæði Heilsustofnunar verður endurnýjað. Gestaherbergjum við stofnunina verður einnig fjölgað um nærri 40%.
Íbúðirnar eru teiknaðar af arkitektastofunni Arkþing Nordic og verkfræðistofunnar Eflu. Byggingaraðili er Þingvangur.
Sjónvarpsþáttur um verkefnið
Nýverið kom út sjónvarpsþáttur á sjónvarpsstöðinni Hringbraut um uppbyggingu Lindarbrúnar. Hin þjóðþekkta fréttakona, Elín Hirst, kom á staðinn við fyrstu skóflustunguna 2. maí 2022.
Það var hluti af sjónvarpsþættinum tekinn upp auk þess sem verkefni við Lindarbrún voru gerð góð skil.