Samningur er við alla íbúa um ákveðna þjónustu sem er veitt af Heilsustofnun. Lögð er áhersla á öryggi, vellíðan, félagslega þætti og að fólk tileinki sér heilbrigðan lífstíl.
Þjónustustjóri starfar á Heilsustofnun og er tengiliður við íbúa.
Matstofa Jónasar, heilsusamlegt og fjölbreytt úrval góðum grænmetisréttum og fiski
Læknisfræðileg endurhæfing
Einstaklingmeðferðir, s.s. heilsunudd, nálastungur og leirböð
Ýmis námskeið og viðburðir
Skráning á póstlista
Framkvæmdir við fyrsta áfanga við Lindarbrún hófust í maí 2022 og má gera ráð fyrir að byggingartími taki rúmlega tvö ár. Með því að skrá sig á póstlistann færðu sendar upplýsingar, þ.m.t. skilalýsingu, stærð og verð, áður en íbúðirnar fara í almenna sölu.